Skilmálar BRP-Ellingsen

 

BRP-Ellingsen býður upp á úrval vélknúinna ferðatækja. BRP merkið er með yfir 70 ára reynslu í iðnaðinum og staðsett á Vínlandsleið 1, 113 Reykjavík. 

 

Það er þægilegt og einfalt að versla hjá okkur og býður Netverslun BRP upp á að fá tilboð í ferðatækin en fyllt er út sérstakt form í vöruspjaldinu, í kjölfarið hafa sölumenn okkar samband. Hægt er að versla fatnað, skó, gleraugu og hjálma sem við sendum frítt innanlands.


Verð


Verð geta tekið breytingum án fyrirvara. Öll verð eru með VSK og án sendingakostnaðar. Auglýst verð á vefsíðu þessari fela ekki í sér bindandi tilboð af hálfu BRP-Ellingsen. Verðupplýsingar á þessari vefsíðu geta innihaldið prentvillur eða verið úrelt vegna verðbreytinga birgja, gengi gjaldmiðla eða annara þátta. Öll verð eru birt með fyrirvara um villur. 

 

Skilaréttur / Skiptiréttur

 

Almennur skilaréttur á vörum, að tækjum undanskildum, eru 14 dagar frá útgefnum reikning. Skiptiréttur á vörum er 30 dagar frá útgefnum reikning. Varan skal vera óskemmd, í upprunalegum umbúðum sínum og söluhæfu ástandi. Sérpöntunarvörum og vörum sem ekki eru almennar lagervörur, fæst ekki skilað eða skipt. Framvísi viðskiptavinur ekki fastanúmeri tækis við pöntun á vara- og/eða aukahlutum sem leiðir af sér að röng vara sé pöntuð fæst þeirri vöru ekki skilað eða skipt. Viðskiptavinur er ábyrgur fyrir því að koma vöru til BRP-Ellingsen við skil og/eða skipti. Tækjum og útsöluvörum fæst ekki skilað.

Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.

 

Pantanir


Allar sérpantaðar vörur, vörur sem ekki eru almennar lagervörur, þarf að greiða fyrirfram. Varan fer í pöntun þegar viðskiptavinur hefur framvísað greiðsu með því að staðgreiða eða senda kvittun fyrir greiðslu á BRP@Ellingsen.is
Almennur pöntunartími á vara- og aukahlutum, sem ekki eru til á lager hjá BRP-Ellingsen, eru 10-14 virkir dagar. Pantanir á umfangsmiklum vörum, þungum og/eða stórum, getur verið allt að 20 virkir dagar.

Hægt er að hraðpanta vörur gegn 10% álags á vöruverð, hraðpantanir berast almennt á 24-48 tímum. 

BRP-Ellingsen tekur ekki ábyrgð á töfum sem orsakast af flutningsaðila, vöruhúsi birgja eða öðrum töfum sem til eru komnar sé varan tímabundið eða alfarið ófáanleg frá birgja. 

 

Heimsendingar


Óski viðskiptavinur eftir að fá vöru senda ræðst sendingarkostnaður af verðskrá Íslandspósts. Vörur eru póstlagðar alla virka daga.

Óski viðskiptavinur eftir að fá tæki sent ræðst sendingarkostnaður af verðskrá þess aðila er viðskiptavinur kýs að nota. BRP-Ellingsen býður akstur á nýjum tækjum til flutningsaðila innan höfuðborgarsvæðis, kostnaður ræðst af verðskrá hverju sinni. 

 

Verðtilboð


Verðtilboð í tæki taka mið af gildandi verðlista þess dags er þau eru gefin út. Verðlistar taka breytingum háð gengisskráningu ISK/EUR, verðbreytinga birgja eða annara þátta. Endanlegt verð ræðst af gildandi verðlista þess dags er tækið kemur til Íslands. Kaupandi getur fest sér verðtilboð á gildandi verðlista með greiðslu kaupverðs tækis.
Verð auka- og varahluta tekur ávallt mið af gildandi verðlista þess dags er hluturinn er afhentur. 

Innborganir


Innborganir á tæki fást ekki endurgreiddar eftir að tæki fer í flutning til íslands. Fram að þeim tímapunkti fást innborganir endurgreiddar að fullu að frádregnum kostnaði, hafi fallið til kostnaður á BRP-Ellingsen vegna pöntunar tækis. 
Innborganir miðast við 10% af kaupverði tækis án aukaluta. 

Ábyrgð

 

Almenn ábyrgð á nýjum tækjum eru 2 ár frá afhendingadegi. Að öðru leiti fylgja ábyrgðaskilmálar íslenskum lögum.

 

Sala notaðra tækja

BRP-Ellingsen tekur að sér endursölu notaðra tækja fyrir einstaklinga og fyrirtæki. 

Söluþóknun: 4% af söluandvirði tækis + VSK. Lágmarksgjald 120.000.- kr + VSK. Eigendaskipti og umsýslukostnaður innifalinn. 
20 virkir dagar í sýningasal er innifalinn í söluþóknun, að þeim tíma liðnum er kostnaður 990.- kr + VSK fyrir hvern virkan dag þar til tæki selst eða er sótt, rukkað mánaðalega. 

50% afsláttur er veittur af söluþóknun, eigi viðskiptavinur nýtt tæki í pöntun. 

Sölumenn ákvarða söluverð tækis útfrá listaverði þess, viðskiptavinur samþykkir söluverð áður en tekið er við tæki til endursölu. BRP-Ellingsen áskilur sér þann rétt að taka tækið úr sölu að 20 virkum dögum liðnum.

Þrifagjald: 13.990.- kr 
Söluskoðun: 29.990.- kr

 

Höfundaréttur og vörumerki

 

Texti, grafík, lógó, myndir og allt efni á www.brp.is eru eign S4S ehf. Öll afritun og endurdreifing bönnuð nema með skriflegu leyfi frá S4S ehf. S4S er skráð vörumerki í eigu S4S ehf. Og ekki má nota það í tengslum við neina vöru eða þjónustu án skriflegs leyfis frá S4S ehf.

 
Trúnaður


Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Varnarþing

 

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.

Hafa samband

Velkomið er að hafa samband í gegnum netfangið BRP@ellingsen.is eða í síma 415-8500 ef einhverjar spurningar vakna.